Spánarćvintýriđ á enda...
Já þá blogga ég mjög líklega síðasta bloggið mitt frá Spáni.
Við höfum ákveðið að flytja heim þannig ég verð alkomin 20.des:D það verður mjög fínt að koma bara heim þó lífið hér sé æðislegt þá er ég búin að prófa, ég get huggað mig við það.
Ég ætla taka eina önn í VMA og svo næsta haust held ég áfram í MA og stefni á að klára þar.
Allavegana þá kláraði ég skólann minn á föstudaginn og kom þá hingað í sveitina til mömmu og pabba. Ég er búin að vera pakka niður og gera klárt því ég er að fara til Sviss á föstudaginn til minnar heittelskuðu Jennýjar<3 það verður svo ótrúlega gaman hjá okkur:) hún er búin að skipuleggja þessa daga alveg frá morgni til kvölds:D
En síðasta vikan mín í Valencia var mjög skemmtileg. Á þriðjudeginu fór ég í göngutúr í ánni eða það var einu sinni á er rosalega fallegur garður núna ég fór þangað með Önnu frá Svíþjóð og við tókum myndir og böðuðum okkur í sólinni.Þegar ég kom heim bakaði ég kökur fyrir afmælið mitt. Á miðvikudeginum var nú afmælið mitt. Það var einn skemmtilegasti afmælisdagur til þessa. Ég fór í skólann með kökuna mína og við borðuðum kökuna kennarinn minn opnaði kampavínsflösku handa mér í tilefni dagsins og þetta var léttur og skemmtilegur skóladagur. Við vorum að spila Tabú held ég að það heiti, svona spil þar sem þú færð eitthvað orð og átt að reyna lýsa en þú færð líka orð sem þú mátt ekki segja. Og það gekk svona rosalega vel. Ég og Aniek vorum saman í liði og rústuðum hinum:D Eftir skóla fór ég bara heim og slappaði af og drakk te og það var rosalega rólegt hjá okkur bara:) Svo um 8 fór ég, Jenny og Tina sem er líka frá Svíþjóð út að borða og rosalega góðan ítalskan stað. Eftir það fórum við og hittum hina krakkana í skólanum. Anna og Jenny bjuggu til þessa fínu kórónu handa mér og vakti hún mikla athygli allt kvöldið. Seinna um kvöldið fórum við og fengum okkur brownies á veitingastað sem við förum vikulega á rosalega góður. Það sem eftir var af kvöldinu röltum við á nokkra bari og það var rosalega gaman. Ég hitti 2 íslenska krakka á einum barnum mjög skemmtileg tilviljun þar sem þetta eru fyrstu íslendingarnir sem ég hitti í Valencia, því þegar ég var að labba fyrr um kvöldið hitti ég eða við nokkra kalla frá Belgíu því liðið þeirra var að spila við Valencia daginn eftir og þeir sögðust hafa hitt aðra íslendinga fyrir 10 mínútum og svo hitti ég þá svona 2 tímum seinna á þessum bar mjög svo skemmtilegt. En ég vil þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar:D
En nóg af afmælinu mínu.
Svo var fimmtudagurinn næst síðasti dagurinn minn í Valencia ég reyndi að gera allt sem ég átti eftir og það tókst svona nokkurn veginn.
Á föstudeginum komu mamma og pabbi og sóttu mig.
Þetta voru 3 bestu mánuðir lífs míns ég mæli eindregið með því að fólk fari í annað land og læri nýtt tungumál svo mikið sem getur gerst:D
Nóg í bili ég er að fara til Sviss á föstudaginn kem heim á miðvikudeginum þar á eftir. Inga kemur síðan á fimmtudeginum og við förum til Íslands á laugardeginum:D
Hlakka rosalega til að sjá ykkur
Te quiero
Kara Rún
Bara rúmlega vika eftir
Que tal?
Hér er allt saman mjög svipað.´
Það er bara ein vika eftir í skólanum. Skólinn gekk rosa vel þangað til í síðustu viku þá fór allt að flækjast alltof mikið en ég fer í þetta efni bara aftur eftir áramót. Í næstu viku verður rosalega mikið að gera. Það er síðasta vikan mín hér í Valencia svo ég þarf að gera allt sem ég á eftir að gera. Þarf að taka myndir hér úr borginni, svo er afmælið mitt á miðvikudaginn og í seinni tímanum mínum þá ætlum við að hafa smá veislu. Allir í bekknum koma með eitthvað og við borðum kökur og svona í tilefni dagsins
Ég ætla svo að taka próf til að sjá hvernig ég stend í spænsku á fimmtudaginn. Ég er núna í level B1 en prófið er bara úr A1 og A2 svo ég held ég taki B1 aftur eftir áramót þegar ég skipti um skóla.
Ég kíkti þónokkru sinnum út í síðustu viku og í þessari líka. Denise sem er frá Hollandi var að fara í dag þannig við fórum út um helgina því það var síðasta helgin hennar svo fórum við út í gær því það var síðasta kvöldið og við fundum alltaf einhverjar ástæður til að fara út og hafa gaman.
Ég held ég eigi eftir að sakna Valencia mjög mikið. Ef einhverjum langar að læra spænsku þá mæli ég eindregið með þessum skóla og þessari borg!
Árshátíðin í MA er á morgun og mig langar nú mjög mikið að fara en ég fer bara næstu 2 ár ég vona bara að þig skemmtið ykkur rosalega vel og ég heimta myndir frá ykkur
Svo eru bara 15 dagar í Sviss og 23 dagar í Ísland!
Ég bara get ekki beðið.
Ég held samt það verði mjög erfitt að tala við ykkur íslensku ég tala bara spænsku og ensku og hugsa á ensku og spænsku. Ég talaði við Signý í fyrradag og það var eitt erfiðasta samtal sem ég hef átt lengi ég hugsaði á ensku og spænsku og þurfti síðan að þýða það á íslensku, það er orðið mjög slæmt
Get ekki beðið eftir að koma heim og hitta alla!
Svo verð ég loksins stór stelpa á miðvikudaginn loksins 18 ára
Ég er lang yngst í skólanum og það hlægja allir af mér því þeim finnst ég svo lítil og ung en það endar á miðvikudaginn!
Hlakka til að sjá ykkur þangað til næst
Hasta luego:)
Kara Rún
Ný íbúđ og nýtt líf:D
Ég reyndar veit ekki hvað ég get sagt ykkur þannig held þetta verði stutt.
Skólinn gengur rosa vel, skil alltaf meira og meira.
Ég fór til mömmu og pabba fyrir 2 vikum og það var rosalega fínt. Fórum á miðaldarmarkað hann var rosalega flottur, fólkið allt í svona gamaldags búningum og rosa flott. Síðan var bara slappað af restina af helginni.
Síðan í þeirri viku kíkti ég á lífið á miðvikudegi, fimmtudegi og laugardegi:D
Ég verð að segja að þetta er mun fjölsbreyttara en við eigum að venjast á litlu Akureyri.
Um síðustu helgi fór ég í dýragarð, Bio Parque, það eru fýr frá Afríku þar mjög gaman að sjá það. Og ég áttaði mig á því að þegar ég verð stór langar mig í apa
Þannig ég lýsi eftir maka sem vill líka apa? Á sunnudeginum flutti ég frá fjölskyldunni í íbúðina til krakkanna í skólanum og það er rosalega gaman hefur aldrei liðið svona vel síðan ég kom til Spánar!
Í kvöld er svo Happy-Mirécoles svo ég ætla skella mér út, vona það verði gaman.
Ég er byjruð að versla jólagjafirnar og langar að versla allt í búðunum, það er allt svo flott

En svo er bara mánður í að ég fari til Jennýjar og 39 dagar í Ísland!
Veit ekki hvað ég á að skrifa meira en hlakka ekkert smá til að hitta alla um jólin!
Love you<3
Hasta luego
Kara Rún
Buenos días...
Ég segi bara fínt. Hér gengur allt eins og vanalega. Skólinn fínn, var veik í síðustu viku svo ég fór ekkert í sund eða ræktina, en ætla fara á eftir í sund svo er þið viljið koma með þá bara endilega þið verðið bara eiga sundbol, sundhettu, gleraugu og skó haha:)
Það sem hefur drifið á daga mína er að ég fór á miðvikudaginn á "Happy miércoles" með skólanum, við fórum fyrst á einn bar og síðan á ítalskan veitingastað, sem var mjög góður, síðan á pub og vorum þar til 3 og þá fór ég bara heim að sofa enda skóli daginn eftir.
Á föstudaginn fór ég síðan í íbúðina til sænsku stelpnanna og þar voru nokkrir krakkar og við vorum þar til 2 og fórum síðan á Lasanimas eða diskótek og það var rosalega gaman, kom heim þáðan kl 7, hérna eru diskótekin opin til 8 á morgnanna held ég:)
Laugardagurinn fór bara í að sofa og læra og slappa af. En í gær, sunnuudag fór ég með fólkinu sem ég bý hjá á ellismellasamkomu, sem sagt við fórum að borða "Paella" sem er ekta spænskur hrísgrjónaréttur rosalega góður og eftir það fóru þau að dansa með hinu gamla fólkinu og ég sat of horfði á, alveg voðalega gaman. Eftir það fórum við á kaffihús og fengum okkur kaffi og með því. Í gærkveldi var matur óvenju seint eða kl 10 og svo vorum við að spjalla ég og konan og stelpan sem ég bý já, alveg rosalega fínt og það getur vel verið að ég verði bara hérna eftir áramót líka.

Ég er að fara til Jennýjar í heimsókn 12.des til Sviss og það verður svo ótrúlega gaman hjá okkur vona ég, hef ekki séð hana síðan 5.ágúst.
Svo eru það gleðifréttir að ég ætla koma heim um jólin, ég og Inga Bryndís fljúgum saman til Íslands 20.des hún kemur nokkrum dögum fyrr til mín áður en við förum til Íslands, og komum saman aftur út 7.jan, ég hlakka ekkert smá til
Ég verð hjá Signý fyrstu 3 dagana, svo hjá ömmu og afa um jólin og hja signý á áramótunum og dagana milli jóla og nýárs:)Á morgun og þangað til á föstudaginn þá á að verða kaldasti tíminn í 30 ár hér á Spáni, 15° og rigning, og snjór á mið-Spáni en sem betur fer er það ekki hjá mér. Svo ég þarf að draga fram þykka peysu og trefil.
Ég er að vinna í því að setja myndir á síðuna.
Það var líka verið að breyta klukkunni þannig það munar bara klukkutíma hjá mér og Íslandi:)
Þangað til næst
Hasta luego <3
Digame?
Ég ætla rétt að láta vita af mér. Það hefur ekkert rosalegt gerst núna á þessari viku síðan ég bloggaði síðast. Ég sit núna í lestinni eins og síðast á leið upp til Valencia eftir helgina hjá mömmu og pabba. Ég ætlaði að fara í gær en þá byrjaði ég að æla og var rosalega slöpp þannig ég var bara áfram hjá mömmu og pabba. Ég er ennþá slöpp en það lagast nú vonandi.
Ég er bara búin að hafa það rólegt um helgina, fór reyndar í messu í gær það var rosalega fínt, þó ég sé ekki mikið fyrir kirkjur og svona þá held ég að ég eigi eftir að fara oftar í messu það er eitthvað svo róandi.
Já eins og ég sagði ykkur síðast þá væri handboltinn að ganga mjög vel en ég ákvað í síðustu viku að hætta bara í handboltanum. Þetta hentaði mér alls ekki þannig núna er ég bara í ræktinni og að synda. Ég er semsagt í sundbol, með sundhettu, sundgleraugu og þarf að vera í inniskóm, þetta er mjög fyndin sjónJ En mér líður bara vel með þetta og vona ég geti komið mér í almennilegt form svona.
Skólinn gengur eins og alltaf, mjög erfiður en mér gengur bara vel. Ég er meira segja komin upp um eitt level og allt að gerast.
Í næsta mánuði ætla ég svo að reyna tala bara spænsku heima, ég veit ekki hvernig það á eftir að ganga en ég verð bara að prófa.
Guð og ég trúi ekki að það sé kominn svona mikill snjór á Íslandi. Hér er svona 25° og fer stundum upp í 28° og sól með svo ég vorkenni ykkur nú frekar mikið þarna á klakanum og ekki bætir kreppan þetta upp.
Já ég hef ekkert mikið að segja héðan en ætlaði bara rétt að láta vita af mér.
Heyri í ykkur seinna
Hasta luego 
Kara Rún
Home sweet home...
Ég sit ein í troðfullri lest á leið til Valencia. Fyrst þurfti ég að standa í kremju með einhverju fólki en fékk svo loksins sæti og ákvað að blogga þar sem ég á eftir að sitja hér í 2 og hálfan tíma.
Ég fór heim til mömmu og pabba um helgina. Það var frí í skólanum á fimmtudaginn og ég sleppti því að mæta á föstudag þannig það var löng helgi hjá mér. Ég tók lestina frá Valencia til Alicante á fimmtudagsmorgun og ég var mjög þreytt þar sem ég svaf í 4 tíma því ég fór út kvöldið áður með krökkunum úr skólanum í tilefni frísins daginn eftir.
En það var rosalega gott að komast heim á hótel mömmu. Við mamma fórum að versla þrátt við ástandið á Íslandi. Ég get alveg ómögulega reynt að átta mig á hvernig fólki á Íslandi líður núna. Ég trúði varla mínum eigin augum á mánudaginn þegar ég gáði hvað Evran var því hún var komin niður í 133 krónur, hún er búin að vera 150 núna í frekar langan tíma, en nei á þriðjudaginn var hún 173 krónur takk kærlega fyrir. Hvað er að gerast á Íslandi?
En já ég átti frábæra helgi hjá mömmu og pabba. En núna er ég á leiðinni aftur til Valencia og fara í skólann á morgun og reyna halda áfram að læra meiri spænsku. Skólinn gengur bara ágætlega, hann hættir aldrei að vera erfiður en ég lifi þetta af.
Síðasta vika er búin að vera mjög venjuleg, skóli og handboltaæfingar. Ég er búin að fara á 4 æfingar og þetta gengur bara nokkuð vel. Þjálfarinn vill endilega fá mig til að spila en ég er ekki alveg búin að ákveða hvað ég geri. Ég þarf að borga eitthvað til að spila og kannski tekur það sig ekki því ég verð bara þangað til í desember í Valencia og eftir áramót fer ég kannski að æfa með öðru liði en þetta kemur allt í ljós. Stelpurnar í liðinu eru rosalega fínar svo ég kannski get kynnst þeim almennilega þegar ég get talað einhverja spænsku því ekki tala þær mikla ensku.
Já um síðustu helgi fór ég á Oceanogeografic. Það var mjög fínt, rosalega flottar stórar byggingar með fullt af fiskum, hákörlum, mörgæsum, selum og ég fór á höfrungasýningu og fiskarnir eru úr mismundani höfum, litríkir og flottir.
Já það hefur ekkert annað drifið á daga mína hér á Spáni. Lífið gengur alltaf sinn vanagang hvort sem það er á Íslandi eða Spáni.
Ég keypti myndavél um helgina svo loksins get ég farið að taka myndir og setja inn myndir, það eru bara nokkrar myndir frá Spánarlífinu á myspace síðunni minni en ég reyni að vera dugleg að taka myndir.
Svo átti Jenný mín afmæli í gær og til hamingju með afmælið elskan og það er pakki á leiðinni;*
Já Alexandra þú átt að fljúga til Alicante þegar þú ætlar að kíkja í heimsókn, og ég þarf líka að ákveða hvenær ég kem til þín og Miss Switzerland
Já held það sé nóg í bili.
Hasta luego.
Kara Rún
Hola...
Qué tal?
Ég ætla reyna blogga eitthvað skemmtilegt fyrir ykkur en það er voðalega lítið búið að gerast síðan síðast. Skólinn gengur ágætlega, alltaf bætast við ný og ný málfræðiatriði sem ég kann ekki á íslensku og eru útskýrð á spænsku þannig ég skil ekki mikið. Ég kem heim úr skólanum uppgefin ég er búin að hugsa svo mikið eftir 4 tíma í skólanum að ég þarf alltaf að taka mér siestu.Mig er farið að dreyma málfræðiatriði á spænsku. Við krakkarnir í skólanum verðum alltaf betri og betri vinir svo það er mjög gott.
En hanboltinn ætlar ekki að ganga vel, í síðustu viku sagði ég ykkur að á miðvikudaginn núna fyrir 2 dögum átti að vera æfing. Ég fór á æfingu, voða tilbúin, hætt að vera stressuð og svona, heirðu nei þá var leikur og stelpurnar sem ég er að fara æfa með voru að keppa. Ég horfði á leikinn hjá þeim, hitti þjálfarann og talaði við stelpurnar sem var mjög gott þá er ekki eins erfitt að fara á næstu æfingu sem er í kvöld. En þjálfarinn er gamall karl með yfirvaraskegg og smá ógnvekjandi og hann vildi ekki mikið við mig tala þar sem ég skildi ekki spænsku og ekki frönsku og auðvitað talar hann ekki ensku frekar en einhver annars hér á Spáni. Stelpurnar tala mjög litla ensku en það bjargast, þær sögðu að ég gæti kennt þeim ensku og þær mér spænsku. Það hefur ekki oft gerst að ég sé bara talin góð í ensku. Allavegana þá er æfing í kvöld og gaman að sjá hvernig það fer. Ég get ekki sagt að þær séu eitthvað rosalega góðar en ég vildi frekar að þær væru miðlungs heldur en rosa góðar þar sem ég er ekki í neinu formi. En já nóg um handboltann í bili, ég segi ykkur meira frá hvernig gekk í næsta bloggi.
En svo er það önnur tilraun að fara á lífið hér í Valencia í kvöld. Ég og sænsku stelpurnar og örugglega krakkarnir sem þær búa með ætlum á Diskótek eins og þetta heitir hér, eða einhvern skemmtistað sem er víst rosa flottur og vinsæll og hlakka ég bara til þess.
Svo á morgun fer ég að skoða Oceanogeografic eða safn sem Valencia er mjög vinsæl fyrir, þetta er eitt af 4 söfnum held ég og er svona fiska og hvala sýning, segi frá því seinna og set inn myndir ef myndavélin mín virkar.
Adios.
Vika 2 í skólanum!
Jæja þá er enn ein vikan liðin. Skólinn bara gengur fínt, er alltaf að skilja betur og betur. Allavegana var kennari sem kenndi mér í síðustu viku að kenna mér í gær einn tíma og hann sagði að mér hefði farið mikið fram svo ég er ánægð með það.
Það bættust nýjir krakkar í bekkinn minn á mánudaginn, ítalskur strákur, 2 sænskar stelpur og þýskur strákur. Þau eru rosalega fínt og ég er mjög ánægð í skólanum núna.
Á miðvikudagskvöldið fór ég á Happy miércoles en þá hittast þeir krakkar í skólanum sem vilja og fara á pub eða borða eða eitthvað þess háttar. Við fórum fyrst og fengum okkur drykk á einum bar og síðan að borða og þar kynntist ég fleira fólki úr skólanum sem var mjög gaman því ég tók áhættuna og fór bara ein og vissi ekkert hvort ég mundi þekkja einhvern en krakkarnir í bekknum voru þarna og svo bara byrjaði maður að spjalla við næsta mann eins og sannur Spánverji, því þeir eru mjög miklir spjallarar og tala við næsta mann úti á götu. Ég var voðalega vinsæl því sumir höfðu aldrei hitt fólk frá Íslandi áður og fannst ég rosalega sniðugt fyrirbæri.
Tíminn flýgur áfram hérna á Spáni og ég verð komin heim til Íslands áður en ég veit af. Það hefur ekkert merkilegt gerst þessa viku. Nema ég ætlaði á fyrstu handboltaæfinguna mína og var búin að vera stressuð í meira en viku því eins og ég sagði síðast er ég ekki í neinu formi og ég tók strætóinn og fann skólann og handboltasalinn því þetta er rosalega stór skóli, ég fann konu í afgreiðslunni og spurði hana um Balonmano á minni góðu spænsku og hún sagði að næsta æfing væri á miðvikudaginn í næstu viku útaf einhverri veislu þannig ég fór bara heim og þarf að vera stressuð þangað til á miðvikudaginn, og vonandi byrjar handboltinn þá ef ekki þá nenni ég ekki að standa í þessu lengur og fer bara í ræktina. ![]()
Í dag hættu þýski strákurinn og rússneska stelpan eða fólkið þau eru nú eitthvað eldri en ég, og við erum þá bara 5 eftir svo eftir næstu viku hættir þýska stelpan svo ég veit ekki hvort nýjir bætast við eða hvað en það verður mjög gaman að fá nýtt fólk í hverri viku, en sænsku stelpurnar verða í skólanum jafn lengi og ég og mér finnst rosalega gott að vita af þeim. Þær einmitt buðu mér með sér út í kvöld svo Kara er að fara kíkja á lífið í Valencia í kvöld![]()
Þá er það ekki mikið meira í bili en ég vil samt frá fréttir af 3.H? Hvar eruði krakkar?
Og handboltastelpurnar mínar þið megið ekki gleyma mér þá verð ég mjög leið.
Og ég fer í jólafrí 16 des og verð vonandi altalandi í spænsku þá og kann vonandi að keyra beinskiptan bíl því mamma og pabbi ætla að kaupa lítinn bíl til að skutlast á og allir bílar á Spáni eru beinskiptir svo ég verð bara að gjöra svo vel að læra á það.
En nóg í bili ég skrifa vonandi aftur eftir helgi. Og mamma og pabbi eða amma og afi þið getið skrifað athugasemd hérna fyrir neðan með því að smella á athugasemdir svona til að skilja eftir smá kveðju handa mér.
Adios Kara Rún
já loksins blogg:)
Jæja þá ákvað Kara loksins að blogga.
Ég er búin að vera hérna á Spáni í rúmlega mánuð og hef það alveg rosalega gott.Það er svo margt sem ég get skrifað en ég ætla segja ykkur smá frá þessum mánuði mínum í útlöndunum.
Þetta byrjaði allt með smá Evrópu ferðalagi hjá okkur fjölskyldunni, við tókum Norrænu fimmtudaginn 7. ágúst, það voru lengstu sólahringir lífs míns. Tíminn hefði verið fljótari að líða ef ég hefði stoppað tímann. Svo þegar við komum í land í Danmörku keyrðum við aðeins af stað og gistum eina nótt í Danmörku, síðan gegnum allt Þýskaland en gistum eina nótt þar á leiðinni, síðan Sviss gistum líka þar og gegnum allt Frakkland og til Spánar og gistum nyrst á Spáni eina nótt og svo keyrðum við heim þar sem við búum, rétt fyrir utan Alicante. Þá er ég búin að koma þessu frá mér.
Næstu 2 vikur fóru bara í það að koma okkur fyrir og skoða okkur um, og bíða eftir Halldóri og Jón Þóri. Loksins kom að því og þeir komu til mín 1. september. Það var rosalega gaman að fá þá því ég var ekki búin að hafa samskipti við neina nema mömmu og pabba í mánuð svo það var mjög gaman.
Við gerðum nú mikið á þessum 10 dögum. Fórum á ströndina, í Terra Mitica sem er stór skemmtigarður við Benidorm, fórum að versla og vorum í sundlauginni sem er í garðinu hjá mér, við fórum líka á fótboltaleik, Spánn-Bosnía sem var rosalega gaman:D þvílík upplifun að fara á svona leikfang og sjá alla þessa frægu kalla og auðvitað vann Spánn. Svo daginn eftir fórum við á handboltaleik, supercup hér á Spáni, Ciudad Real - Barcelona, og þar var Óli Stef að spila en þeir voru alls ekki nógu góðir og Barcelona vann, en mjög gaman að sjá þetta, virkar alltaf stærra og flottara í sjónvarpinu.
Já og svona voru þessir 10 dagar hjá okkur, æðislegt að fá strákana í heimsókn. Það sem stóð upp úr var samt klárlega Gotti og svo sem byrjar á E og endar á N haha strákar. Svo þurftu þeir því miður að fara heim og lífið mitt hér að byrja að alvöru:)
Ég bý semsagt núna í Valencia sem er tvem tímum frá mömmu og pabba og er í spænskuskóla hér og spila handbolta, eða handboltinn byrjar á morgun, ég sé til hvernig það gengur þar sem ég er ekki í neinu formi og kann ekkert í spænsku. En þær muna þá eftir mér sem feitu stelpunni sem gat ekki hlaupið og skildi aldrei neitt, haha:) og skólinn gengur svona ágætlega, skil voða lítið og krakkarnir mjög skrítnir. Við vorum bara 4 í mínum hóp í þessari viku og 2 farnar heim svo við erum 2 eftir ég og rússnesk stelpa sem kann ekki orð í ensku og er búin að vera í þessu leveli svo lengi að hún kann það utan af en kemst aldrei upp á næsta level, svo næsta vika verður fróðleg. Ég er hjá spænskri fjölskyldu sem er æðisleg, konan er enskukennari sem er mjög gott, því það er sjaldgjæft að spánverjar tali ensku svo ég er mjög heppin, maðurinn talar ekki ensku en stelpan talar ensku og hún er 20 ára og ég er með henni í herbergi en hún er núna í Bandaríkjunum í 3 vikur svo ég er bara ein. Þannig lífið hér í Valencia er alveg yndislegt:)
Ég var einmitt að koma af fótboltaleik sem ég fór ein á haha, en það var Valencia-Osasuna, ég bý alveg við hliðiná Mestalla leikvanginum hér í Valencia svo ég á örugglega eftir að fara á fleiri leiki.
En nóg í bili ég set upplýsingar um heimilisfang og svona síðar þegar ég verð búin að læra betur á þetta:D
Hasta pronto
Kara Rún
